Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the acf domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /home/skuggi/old.skuggi.is/wp-includes/functions.php on line 6170

Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the forminator domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /home/skuggi/old.skuggi.is/wp-includes/functions.php on line 6170
Áshamar – Skuggi

Áshamar

Framkvæmdir eru hafnar á glæsilegum fjölbýlishúsum í Svansvottuðu ferli í Hamranesi í Hafnarfirði. Í húsunum eru 140 íbúðir, allt frá stúdíóíbúðum til fjögurra herbergja íbúða. Íbúðirnar eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi. Glæsilegt hverfi í nágrenni við stórkostlega náttúru, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Kleifarvatn o.fl. Áætlað er að fyrri hluti verkefnisins verði tilbúið til afhendingar haust 2023 og síðari hluti í byrjun árs 2024.

Fjöldi íbúða
139
Áætluð verklok
2024
Arkitekt
KRark ehf.

Á svæðinu er risinn skóli ásamt leikskóla og tónlistarskóla, þjónustu og snyrtileg atvinnustarfsemi auk opinna svæða, garða, leiksvæða.

Á svæðinu rís blönduð byggð þar sem gott jafnvægi ríkir milli heimilis og vinnu í vistvænu hverfi sem býr yfir góðum tengslum við náttúrufar svæðisins.  Horft er til hverfisins í heild þar sem reynt verður að „tryggja fjölbreytt, sveigjanlegt, öruggt og örvandi umhverfi sem hvetur til skapandi athafna fólks á öllum aldri“.

Mikil innviðauppbygging er að eiga sér stað og hefur þjónusta á svæðinu aukist til muna síðustu mánuði og ár. Á Ásvöllum er aðstaða til íþróttaiðkunar til fyrirmyndar og á árinu 2021 var fyrsta skóflustungan tekin að nýju og glæsilegu knattspyrnuhúsi sem eflir og styrkir aðstöðuna. Opnað var fyrir umferð Ásvallabraut sem tengir ný íbúðahverfi við Kaldárselsveg.